Frábært leikfang fyrir hundinn til að halda honum uppteknum og þjálfa huga hanns.
Skemmtilegt fyrir hunda af hvaða stærð, tegund eða aldri sem er.
Auðvelt að þrífa og endist vel.
Dog Hide n' Slide er þjálfunarleikfang á öðru stigi þroskaleikfanga.
Leikfangið hefur enga hluti sem detta úr því, allir kubbar og bollar færast til og eru fastir í leikfanginu.
Settu nammi í götin á bollunum og snúðu spjöldunum til að fela sönnunargögnin!
Settu þrautina á gólfið og fáðu hundinn til að sýna leikfanginu áhuga.
Stundum þurfa voffarnir aðstoð, losaðu flipa til að sýna hundinum hvernig þrautin virkar.
Nina Ottosson þrautirnar eru hannaðar til að virkja huga hundsins, fylgstu alltaf með þegar hann leikur sér, skildu hann aldrei einann eftir með þrautinni og ekki leyfa honum að naga þrautina. Geymdu svo þrautina frá öðru dóti þangað til næst.
Til að þrífa þrautina einfaldlega vaskaðu hana upp í vasknum með sápuvatni og þurrkaðu af henni.
Stærð: 33x33 cm.
Hæð:5 cm.